Um 41 Club Iceland

41 Club Iceland er hreyfing fyrrverandi Round Table-félaga. Round Table-hreyfingin er alþjóðlegur félagsskapur ungra manna á aldrinum 20–45 ára.

Félagar koma úr ýmsum starfsstéttum þjóðfélagsins. 41 Club Iceland er beint framhald fyrir þá félaga sem eru orðnir 45 ára. Félögum eldri en 40 ára er þó velkomið að ganga í 41 Club Iceland, því að í mörgum löndum er aldurstakmarkið 40 ár en ekki 45 ár eins og á Íslandi.

Fyrsti Old Tablers-klúbburinn á Íslandi var stofnaður á Akureyri árið 1997. Hann starfaði ekki lengi, en hreyfingin var endurvakin árið 2010 með stofnun OT-2. OT-3 fylgdi í kjölfarið árið eftir, á sama tíma og landssamtökin voru stofnuð og gengu í alþjóðahreyfinguna. Árið 2026 var heiti hreyfingarinnar breytt úr Old Tablers Iceland í 41 Club Iceland.

41 Club Iceland er hluti af 41 International, alþjóðasamtökum fyrrverandi Round Table-félaga. Hreyfingarnar kalla sig ólíkum nöfnum eftir löndum, svo sem Old Tablers, Ex-Tablers, 41ers eða 41 Club, sem er algengasta heitið. 41 Club er hluti af Round Table-fjölskyldunni ásamt Round Table, Ladies Circle, Tangent og Agora.

Saga Round Table

Round Table-hreyfingin var stofnuð í Bretlandi árið 1927 af Louis Marchesi, og var hámarksaldur félaga 40 ár. Hugmyndin var að veita ungum mönnum svipuð tækifæri til félagsstarfa og sambærilegar hreyfingar, svo sem Rotary, buðu sínum félögum, sem flestir voru þó mun eldri. Ungum mönnum fannst þeir á þessum tíma ekki ná frama innan annarra hreyfinga eða samtaka. Hreyfingin óx hratt og innan fárra ára voru Round Table-klúbbar í Bretlandi orðnir yfir 100.

Tilgangur Round Table er:

  • að sameina unga menn úr ólíkum starfsgreinum til að öðlast betri skilning á þjóðfélaginu og stöðu einstaklingsins innan þess;
  • að lifa eftir einkunnarorðunum „Í vináttu og samvinnu“;
  • að auka alþjóðaskilning og vináttu með aðild að Round Table International.

Einkunnarorð Round Table eru: Tileinka – Aðlaga – Bæta.

41 International

Fyrsti klúbbur fyrrverandi Round Table-félaga var stofnaður í Liverpool árið 1936. Í kjölfarið voru fleiri slíkir klúbbar stofnaðir í Bretlandi og í öðrum löndum þar sem Round Table hafði náð fótfestu.

41 International var stofnað árið 1975 og er ætlað að efla enn frekar þá vináttu og samvinnu sem varð til og þróaðist innan Round Table-hreyfingarinnar. Landssamböndin eru nú 38, klúbbarnir yfir 2.200 og félagar yfir 42.000. Lista yfir landssamböndin má finna á vef 41 International.

Klúbbarnir í dag

Í dag starfa 14 klúbbar 41 Club Iceland á þessum stöðum: Akureyri, Egilsstaðir, Fjarðabyggð, Húsavík, Reykjanesbær, Reykjavík, Selfoss og Vestmannaeyjar. Sjá alla klúbbana